Stjórn og starfsfólk KSÍ
Stjórn KSÍ
Ársþing
- ársþing KSÍ var haldið í Íþróttahúsinu á Torfnesi, Ísafirði, 25. febrúar 2023.
Stjórn KSÍ var þannig skipuð að loknu ársþingi:
Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður |
Borghildur Sigurðardóttir |
Halldór Breiðfjörð Jóhannsson |
Helga Helgadóttir |
Ívar Ingimarsson |
Orri Vignir Hlöðversson |
Pálmi Haraldsson |
Sigfús Ásgeir Kárason |
Tinna Hrund Hlynsdóttir |
Unnar Stefán Sigurðsson |
Hildur Jóna Þorsteinsdóttir |
Jón Rúnar Halldórsson |
Jón Sigurður Pétursson |
Sigrún Ríkharðsdóttir |
Aðalfulltrúi Austurlands var kjörinn Eva Dís Pálmadóttir, Oddný Eva Böðvarsdóttir fyrir Vesturland, Ómar Bragi Stefánsson fyrir Norðurland og Trausti Hjaltason fyrir Suðurland
Fundargerðir stjórnar má sjá á vef KSÍ.
Nafn | Starf |
---|---|
Klara Bjartmarz | framkvæmdastjóri |
Arnar Bill Gunnarsson | deildarstjóri fræðsludeildar |
Birkir Sveinsson | sviðsstjóri innanlandssviðs |
Bryndís Einarsdóttir | fjármálastjóri |
Dagur Sveinn Dagbjartsson | fræðsludeild |
Elías Bóasson | starfsmaður Laugardalsvallar |
Elísabet Ósk Guðmundsdóttir | knattspyrnusvið |
Fannar Helgi Rúnarsson | innanlandssvið |
Grímur Gunnarsson | knattspyrnusvið |
Guðlaugur Gunnarsson | innanlandssvið |
Hafrún Jónsdóttir | fjármála- og rekstrardeild |
Hafsteinn Steinsson | innanlandssvið |
Haukur Hinriksson | innanlandssvið |
Jóhann Ólafur Sigurðsson | samskiptadeild |
Jörundur Áki Sveinsson | sviðsstjóri knattspyrnusviðs |
Kristinn V. Jóhannsson | vallarstjóri Laugardalsvallar |
Magnús Már Jónsson | innanlandssvið |
Nahla Trabelsi | fjármála- og rekstrardeild |
Ómar Smárason | deildarstjóri samskiptadeildar |
Óskar Örn Guðbrandsson | samskiptadeild |
Pjetur Sigurðsson | innanlandssvið |
Ragnheiður Elíasdóttir | knattspyrnusvið |
Siguður Sveinn Þórðarson | knattspyrnusvið |
Sóley Guðmundsdóttir | samskiptadeild |
Stefán Sveinn Gunnarsson | sviðsstjóri markaðssviðs |
Þóroddur Hjaltalín | innanlandssvið |
Nafn | Starf |
---|---|
Åge Hareide | A karla |
Ásmundur Haraldsson | Aðstoðarþjálfari A kvenna |
Davíð Snorri Jónasson | U21 karla |
Fjalar Þorgeirsson | Yfirmarkmannsþjálfari yngri landsliða |
Jóhannes Karl Guðjónsson | Aðstoðarþjálfari A karla |
Lúðvík Gunnarsson | U17/U16 karla |
Magnús Örn Helgason | U15 kvenna |
Margrét Magnúsdóttir | U19/U18 kvenna |
Ólafur Ingi Skúlason | U19/U18 karla |
Þorsteinn H. Halldórsson | A kvenna |
Þórður Þórðarson | U23 kvenna og U17/U16 kvenna |
Þórhallur Siggeirsson | U15 karla, aðstoðarþjálfari U21 karla |
Breytingar á skipan landsliðsþjálfara KSÍ á árinu
Age Hareide var ráðinn landsliðsþjálfari A karla í apríl 2023 og tók við stjórn liðsins af Arnari Þór Viðarssyni.
Þórhallur Siggeirsson var ráðinn yfirmaður hæfileikamótunar karla og þjálfari U15 landsliðs karla í mars. Þórhallur var einnig ráðinn aðstoðarþjálfari U21 liðs karla. Þórhallur, sem hefur starfað við þjálfun frá árinu 1999 og hefur kennt á A og B þjálfaragráðum KSÍ frá árinu 2018, hefur viðamikla reynslu sem þjálfari hér á landi hjá HK, Stjörnunni, Þrótti R. og Val. Hann er með UEFA A og UEFA Youth A Elite þjálfaragráður ásamt því að vera með M.Sc. í íþróttafræði frá Háskólanum í Reykjavík og hefur þjálfað unga leikmenn, verið yfirþjálfari, afreksþjálfari og þjálfað meistaraflokk. Þórhallur hefur þjálfað hjá Sarpsborg í Noregi og Emami East Bengal á Indlandi ásamt því að vera í þjálfarateymi U21 ára landsliðs karla frá 2021.
Þórður Þórðarson var á árinu ráðinn þjálfari U16, U17 og U23 landsliða kvenna. Þórður, sem hefur lokið KSÍ Pro gráðu, hefur mikla reynslu sem þjálfari og hefur m.a. þjálfað bæði karla og kvennalið ÍA í meistaraflokki og starfaði einnig sem yfirþjálfari ÍA. Þórður var landsliðsþjálfari U19 kvenna frá árinu 2014 til 2021 ásamt því að vera aðstoðarþjálfari U16/17 kvenna á sama tímabili.
Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir var ráðin aðstoðarþjálfari Þórðar með U23 liðið. Bára hefur verið þjálfari síðan 2014 bæði hér á Íslandi sem og í Svíþjóð. Bára hefur farið í fjölda verkefna á vegum KSÍ sem aðstoðarþjálfari og leikgreinandi, fyrst árið 2017. Bára er sjúkraþjálfari að mennt og hefur lokið UEFA A þjálfaragráðu.
Margrét Magnúsdóttir, þjálfari U19 kvenna, var einnig ráðin aðstoðarþjálfari Þórðar með U16 og U17 liðin. Margrét hefur náð frábærum árangri sem þjálfari U19 kvenna, kom liðinu í úrslitakeppni EM nú í sumar þar sem liðið stóð sig vel og endaði í 5.-6. sæti.
Útskrifaðist úr námi í Alþjóðlegri samningagerð og gerðardómsrétti
Haukur Hinriksson, yfirlögfræðingur á skrifstofu KSÍ, útskrifaðist um helgina úr í Alþjóðlegri samningagerð og gerðardómsrétti (International contracts and arbitration) við Fribourg-háskóla í Sviss. Um er að ræða nám til LLM gráðu í lögfræði.
Sem hluta af LLM gráðunni bauðst Hauki að finna starfsnám sem metið yrði sem hluti af náminu og starfaði hann um sex vikna skeið í málaferladeild FIFA (FIFA Litigation Division). Deildin er hliðardeild við lögfræðideild FIFA og sér um öll málaferli FIFA, þá allra helst málaferli FIFA hjá Alþjóða Íþróttadómstólnum í Lausanne í Sviss (Court of Arbitration for sport - CAS). Þar sér deildin um að taka til varna þegar niðurstöðum úrskurðaraðila FIFA hefur verið áfrýjað til Alþjóða Íþróttadómstólsins CAS, t.d. ákvörðunum aganefndar FIFA (FIFA Disciplinary Committee) áfrýjunarnefndar FIFA (FIFA Appeals Body), siðanefndar FIFA (FIFA Ethics Committee) og ákvörðunum knattspyrnudómstóls FIFA (FIFA Football Tribunal).
Lúðvík hættir í leyfisnefnd UEFA
Lúðvík S. Georgsson, fyrrverandi stjórnarmaður í KSÍ og fyrrverandi formaður leyfisráðs KSÍ, hætti í leyfisnefnd UEFA á árinu vegna aldurstakmarkana í nefndum UEFA. Lúðvík hefur setið í leyfisnefnd UEFA síðan 2006, en sú nefnd fer með málefni leyfiskerfisins innan UEFA. Í nefndinni sitja jafnan 10 einstaklingar frá jafn mörgum löndum og er valið í nefndina til tveggja ára í senn.
Lúðvík, sem í dag er formaður aðalstjórnar KR, á að baki áratuga langt og mikilvægt starf fyrir knattspyrnuhreyfinguna. Hann sat í stjórn knattspyrnudeildar KR árin 1980-1995, sem formaður síðustu fjögur árin, og sat síðan í stjórn KSÍ 1996-2014, m.a. sem ritari og varaformaður, en hætti í stjórn að loknu ársþingi 2014. Að loknu þinginu var Lúðvík sæmdur gullmerki KSÍ og heiðurskrossi ÍSÍ.