Hæfileikamótun N1 og KSÍ

Hæfileikamótun N1 og KSÍ

Í Hæfileikamótun N1 og KSÍ koma saman til æfinga ungir og hæfileikaríkir leikmenn frá félögum víðs vegar af landinu. Fjölmargir viðburðir fara fram um allt land og hundruðir drengja og stúlkna fá tækifæri til að láta ljós sitt skína.

Lokahnykkur í Hæfileikamótun hvers ár er svokallað Hæfileikamót. Um 60 stelpur og 60 strákar taka þátt í Hæfileikamótinu þar sem hópurinn æfir saman og lýkur svo Hæfileikamótinu með leikjum á Laugardalsvelli. Í ár komu stelpurnar frá 25 félögum og strákarnir frá 32 félögum víðs vegar að af landinu. Allir leikirnir voru sýndir á KSÍ TV.

Helstu markmið Hæfileikamótunar N1 og KSÍ:

-Fjölga þeim leikmönnum sem fylgst er með.

-Fylgjast með yngri leikmönnum en áður og undirbúa þá fyrir hefðbundnar landsliðsæfingar.

-Koma til móts við minni staði á landsbyggðinni og mæta þeirra þörfum.

-Koma til móts við leikmenn stærri félaga á höfuðborgarsvæðinu sem að öllu jöfnu væru ekki valdir á landsliðsæfingar.

-Bæta samskipti við aðildarfélögin og kynna fyrir þeim stefnu KSÍ í landsliðsmálum.

-Undirbúa leikmenn enn betur til þess að mæta á landsliðsæfingar seinna með fræðslu

Augnablik ...